Landsbanki Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að rétt sé að fram komi að Landsbankinn var ekki boðaður á fundinn. Ársreikningur bankans verður birtur í lok mars.

Fréttatilkynning frá Landsbankanum:

„Vegna frétta af fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun 8. mars, þar sem ræða átti afkomu viðskiptabankanna og laun bankastjóra þeirra, er rétt að fram komi að Landsbankinn var ekki boðaður á þann fund, enda verður ársreikningur bankans ekki birtur fyrr en í lok mars.

Ekki er því um það að ræða að bankastjóri Landsbankans hafi látið hjá líða að mæta til fundar við alþingismenn.“