Ársskýrsla Fjármáleftirlitsins 2007, "Íslenskur fjármálamarkaður", er komin út í enskri þýðingu.

Í ársskýrslu Fjármáleftirlitsins 2007 er gefið yfirlit yfir framkvæmd og skipulag eftirlitsstarfseminnar og þróun og horfur á fjármálamarkaði. Þar er einnig greint frá áherslum í starfi eftirlitsins í alþjóðlegu umhverfi. Efnisumfjöllun skýrslunnar tekur til tímabilsins 1. júlí 2006 til 30. júní 2007 og þróunar fram að prentun, ef nauðsyn krefur.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins www.fme.is en þar má einnig nálgast skýrsluna á íslensku og ensku.