Ársskýrsla Landsbankans var valin ársskýrsla ársins 2007 við í Gerðarsafni í Kópavogi í gær.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra afhenti Landsbankanum verðlaunin.
Í áliti dómnefndar segir m.a. að ársskýrsla Landsbankans sé „stílhrein og vönduð að allri gerð.“
Skýrslan gefi „greinargóða mynd af stöðu bankans og starfsemi rekstrarsviða, fjármögnun og áhættustýringu. Umfjöllun um mannauðsmál, stjórnarhætti og samfélagslega ábyrgð er góð. Reikningar bankans eru skýrir og vel fram settir.“
Það eru Stjórnvísi og Kauphöllin á Íslandi sem standa fyrir verðlaunaafhendingunni en þetta er í fjórða sinn sem þau eru afhent.
Kaupþing banki og Bakkavör Group hlutu einnig viðurkenningu fyrir ársskýrslur sínar.
Í fréttatilkynningu frá Kauphöllinni segir að markmið verðlaunaafhendingarinnar sé að vekja athygli á mikilvægi ársskýrslna í upplýsingagjöf fyrirtækja. Öll hlutafélög sem skráð eru í Kauphöllina eru sjálfkrafa þátttakendur.
Verðlaunin voru fyrst afhend árið 2006 en þá bar Kaupþing banki sigur úr býtum. Ári síðar sigraði Glitnir og Bakkavör Group vann á síðasta ári.