Art Schalk hefur verið ráðinn sölu- og markaðsstjóri Tölvumiðlunar. Schalk var áður sölu- og markaðsstjóri Annata og var einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Outcome en var þar áður hjá Capacent.

Schalk, sem er hollenskur, hefur lokið meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræðum frá Háskóla Íslands og BA gráðu í viðskiptafræðum frá Arnheim Business School í Hollandi. Tölvumiðlun er eitt elsta starfandi tölvufyrirtæki landsins og fagnar 25 ára afmæli á þessu ári.