Ása Ólafsdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Rögnu Árnadóttur dóms- og kirkjumálaráðherra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Ása lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1996, hlaut hdl-réttindi árið 1998, lauk LL.M (c) gráðu frá Cambridge-háskóla árið 2000 og varð hæstaréttarlögmaður árið 2005.

Hún hefur starfað við lögmennsku frá árinu 1996 en var ráðin lektor við lagadeild HÍ árið 2006, í fullu starfi frá árinu 2008.

Ása hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa, hún sat m.a. í kærunefnd jafnréttismála frá 2003-2008, var einn lögmanna Neyðarmóttöku vegna nauðgana 2003-2008, hefur verið formaður áfrýjunarnefndar neytendamála frá 2005 og sat í laganefnd Lögmannafélags Íslands 2005-2008.

Þá kemur að lokum fram í tilkynningunni að Ása tók sæti í stjórn Nýja Glitnis í janúar sl. en hefur nú sagt sig úr stjórninni.