Í tilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að Ásbjörg Kristinsdóttir hefur sagt af sér sem varamaður í bankaráði Landsbankans. Afsögnin tók gildi í gær.

Ásbjörg var kjörin varamaður í bankaráðinu á framhaldsaðalfundi Landsbankans þann 22. apríl 2016, og var þá kjörin varamaður í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar.