Breska verslunarkeðjan Asda hefur áhuga á verslunarkeðjunni Iceland þar sem Asda stefnir að vexti í smærri verslunum sínum. Asda er næststærsta matvöruverslanakeðjan í Bretlandi og tilkynnti í gær að það hefði áhuga á hluta af 730 verslunum Iceland ef salan á meirihluta Iceland fæli í sér uppskiptingu á allri keðjunni. Þetta kemur fram á vefsíðunni This is money.