Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, hefur verið ráðin til starfa hjá Samtökum atvinnulífsins. Þetta staðfestir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við VB.is Ásdis mun hefja störf hjá SA í nóvember.

Ásdís mun stýra nýju efnahagssviði sem sér um hagrannsóknir og verður með greiningu á atvinnulífi og efnahagslífi. „Við erum að efla þann hluta af starfseminni og vildum fá öfluga og góða manneskju þangað inn,“ segir Þorsteinn.

Regína Bjarnadóttir hagfræðingur mun taka við af Ásdísi hjá greiningardeildinni.