Ásdís Eir Símonardóttir og Óli Páll Geirsson hafa gengið til liðs við upplýsinga- og fjártæknifyrirtækið Lucinity. Ásdís Eir sem VP of People and Culture og Óli Páll sem VP of Data Science. Greint er frá ráðningum þeirra í fréttatilkynningu.

„Ásdís Eir leiðir uppbyggingu á hvetjandi starfsumhverfi og menningu þar sem áhersla er lögð á umhyggju, nýsköpun og tækifæri til vaxtar í alþjóðlegu umhverfi.

Óli Páll er doktor í tölfræði og leiðir gagnavísindateymi Lucinity. Teymið hefur það hlutverk að þróa gervigreindarlíkön og aðferðir sem auðvelda fjármálafyrirtækjum til að taka gagnadrifnar og áhrifaríkar ákvarðanir í baráttunni gegn peningaþvætti,“ segir í tilkynningu.

Ásdís starfaði áður hjá samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Hjá OR var hún mannauðsleiðtogi Orku náttúrunnar, Carbfix og sviða Orkuveitunnar. Hún var bakhjarl stjórnenda við framkvæmd starfsmannastefnu og leiddi fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að skapa eftirsóknarverðan vinnustað. Ásdís átti stóran þátt í að OR fékk Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020. Hún er vinnusálfræðingur að mennt, með MS-gráðu í félags- og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands og BS-gráðu í sálfræði frá sama skóla. Ásdís er formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Hlutverk félagsins er að efla fagmennsku í mannauðsstjórnun í þágu atvinnulífsins

Óli Páll starfaði áður sem gagnastjóri Reykjavíkurborgar á þjónustu- og nýsköpunarsviði. Þar byggði hann upp og leiddi skrifstofu gagnaþjónustu en hún styður við gagnadrifna ákvörðunartöku innan borgarinnar og skapar virði úr gögnum hennar. Hann sat einnig í framkvæmdastjórn sviðsins og í aðgerðastjórn stafrænna umbreytinga hjá borginni. Þar áður var Óli Páll sérfræðingur í gagnavísindum hjá Landsbankanum. Hann er með doktorsgráðu í tölfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í stærðfræði frá sama skóla. Samhliða störfum sínum starfar Óli Páll sem aðjúnkt í tölfræði við Háskóla Íslands.

Um Lucinity:

„Lucinity er leiðandi upplýsinga- og fjártæknifyrirtæki sem nýtir gervigreind í hugbúnaði til að auðvelda bönkum og fjártæknifyrirtækjum að koma auga á hegðun og færslur sem tengjast peningaþvætti og fjármálaglæpum.“