Ásgeir Margeirsson hefur komist að samkomulagi um starfslok hjá HS Orku. Auglýsa á starfið og mun Ásgeir gegna starfinu þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

„Ég mun kveðja samstarfsfólk mitt með stolti. Að baki eru 6 ánægjuleg ár þar sem ég hef leitt þetta félag í gegnum verulegar áskoranir og mikið vaxtaskeið. Nýr forstjóri mun taka við góðu búi, framundan eru mikilvæg og umfangsmikil verkefni svo sem að ljúka framkvæmdum og gangsetja Brúarvirkjun, framkvæmdir við stækkun Reykjanesvirkjunar um 30 MW og endurnýjun og stækkun í orkuveri félagsins í Svartsengi. Um leið og ég þakka samstarfsmönnum frábært samstarf óska ég félaginu allrar velgengni í framtíðinni," er haft eftir Ásgeiri í tilkynningu.

„Ásgeir hefur um langa hríð verið lykilmaður í íslenska orkuiðnaðinum og leitt fyrirtækið farsællega í gegnum mikið breytingaskeið. Eftir stendur myndarlegt fyrirtæki og góður árangur þess hefur endurspeglast í ríkum áhuga á félaginu jafnt frá lánveitendum og fjárfestum. Stjórn HS Orku þakkar Ásgeiri sérstaklega fyrir störf hans í þágu félagsins," er haft eftir Bjarna Þórði Bjarnasyni stjórnarformanni HS Orku.