Stjórn Geysis Green Energy hefur, í samráði við viðskiptabanka félagsins, tekið ákvörðun um að vinna markvisst að lækkun skulda félagsins með sölu eigna þess á næstu misserum að því er kemur fram í tilkynningu. Í tengslum við þá stefnumótun hefur Ásgeir Margeirsson ákveðið að hætta sem forstjóri félagsins. Alexander K. Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis, hefur verið ráðinn í hans stað.

„Ég var búinn að tilkynna það fyrir nokkru að ef þessi staða kæmi upp teldi ég mig ekki réttan aðila til að leiða það söluferli. Ég hef unnið að vexti og uppgangi Geysis allt frá því félagið var stofnað og tel eðlilegt að aðrir beri ábyrgð á þeirri vinnu sem nú er framundan. Því varð að samkomulagi milli mín og stjórnar félagsins að ég léti af störfum. Ég óska nýjum forstjóra velfarnaðar í starfi og þakka stjórn og starfsmönnum Geysis ánægjulegt samstarf á liðnum árum,“ segir Ásgeir Margeirsson, fráfarandi forstjóri í tilkynningu.

„Það er ekkert leyndarmál að nokkrir af helstu eigendum félagsins urðu illa úti í bankahruninu og hafa því ekki getað stutt sem skyldi við bakið á félaginu. Þá gerir staðan á fjármálamörkuðum okkur erfitt um vik að fjármagna Geysi eins og við helst kysum. Þess vegna var ákveðið að lækka skuldir félagsins með sölu eigna Geysis og mun það verkefni verða unnið í fullu samráði við viðskiptabanka félagsins á næstu misserum,“ segir Alexander K. Guðmundsson, nýr forstjóri í sömu tilkynningu.

Þar kemur fram að helstu eignir Geysis eru 57,4% hlutur í HS Orku hf. og Jarðboranir hf. Geysir hefur unnið með góðum árangri að uppbyggingu hitaveituverkefna í Kína auk jarðvarmaverkefna í Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Filippseyjum. Geysir er einn af stofnaðilum Keilis, menntastofnunar á háskólastigi á Suðurnesjum.  Dótturfélag Geysis, Enex ehf., lauk á síðasta ári byggingu 9,3 MW jarðvarmavirkjunar í El Salvador og er virkjunin nú í fullum rekstri.