Ásgeir Margeirsson taka við starfi forstjóra HS Orku hf þann 1. janúar næstkomandi.  Júlíus Jónsson hefur gegnt starfi forstjóra fyrirtækisins og forverans, Hitaveitu Suðurnesja hf, frá 1992 og starfi fjármálastjóra Hitaveitu Suðurnesja frá 1982.

Ásgeir Margeirsson hefur setið í stjórn HS Orku og Hitaveitu Suðurnesja frá 2007 og verið stjórnarformaður HS Orku frá 2010.  Ásgeir er 52 ára, menntaður byggingarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð.

Ásgeir hefur starfaði í orkuiðnaði í yfir 20 ár og komið að fjölmörgum verkefnum á Íslandi og erlendis. Ásgeir var meðal annars forstjóri Geysis Green Energy.