Ásgeir er 34 ára Reykvíkingur með margra ára reynslu í sölu og markaðsmálum. Á starfsleið sinni hefur Ásgeir unnið meðal annars sem viðskiptastjóri hjá Símanum og verkefnastjóri hjá Advania og Advania Mobile Pay.

Ásgeir stofnaði framleiðslufyrirækið Gurilla árið 2010 og var megin hlutverk þess að aðstoðaða fyrirtæki með hugmyndavinnu og framleiðslu á efni með frumlegum aðferðum í markaðssetningu á samfélagsmiðlum.

Ásamt vinnu hefur Ásgeir verið áberandi á samfélagsmiðlum sem áhrifavaldur í ferðaþjónustunni en hann hefur haldið úti video bloggi á YouTube og Instagram undir merkinu “Do More Asgeir” eða Gerðu Meir Ásgeir.