Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi liggja nú fyrir. Fimm konur eru í efstu sjö sætum listans.

Ásgerður Halldórsdóttir, sitjandi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, leiðir listann, en hún hlaut örugga kosninga í efsta sætið, eða 463 atkvæði af 711, eða rétt rúmlega 65% atkvæða.

Listinn er sem hér segir:

  1. Ásgerður Halldórsdóttir
  2. Magnús Örn Guðmundsson
  3. Sigrún Edda Jónsdóttir
  4. Bjarni Torfi Álfþórsson
  5. Ragnhildur Jónsdóttir
  6. Sigríður Sigmarsdóttir
  7. Guðrún Jónsdóttir

Greidd atkvæði voru 711 en þar af voru 26 seðlar auðir og ógildir. Talin atkvæði voru því 685. Eins og sést á listanum hlutu tveir af þremur frambjóðendum sem sent höfðu viðskiptablaðinu tilkynningu um framboð sitt náð fyrir augum kjósenda, en sá þriðji Guðmundur Helgi Þorsteinsson komst ekki í röð sjö efstu.