ASÍ lítur ekki á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá því fyrr í dag sem framgang stöðugleikasáttmálans sem ásættanlegan grunn fyrir áframhaldandi samstarfi kjarasamninga.

Þetta kemur fram í tilkynningu ASÍ í dag en ASÍ hefur óskað eftir viðræðum við stjórnvöld til þess að freista þess að jafna þá deilu sem nú er komin upp.

„Ljóst er að í viðræðum gærdagsins um framlengingu kjarasamninga og framtíð stöðuleikasáttmálans kom upp nokkuð flókin staða á síðustu metrum viðræðnanna þegar óvænt útspil ríkisstjórnarinnar leit dagsins ljós,“ segir í tilkynningunni.

„Ljóst er að aðilar höfðu náð verulega langt í að jafna ágreining sem uppi var og tekist að einangra deiluna við eitt tiltekið efnisatriði. Efast er um vilja ríkisstjórnarinnar til þess að setjast að raunverulegum viðræðum við aðila vinnumarkaðarins um endurskoðun á áformum um nýja orku-, auðlinda- og umhverfisskatta  – áformum sem sett hafa nýfjárfestingar í verulega óvissu á þessum viðsjárverðu tímum.“

ASÍ segir mikilvægt að hafa í huga að skýr vilji hafi komið fram af hálfu atvinnulífsins til þess að axla þessa skattbyrði með öðrum hætti, m.a. tillögum um hækkun á atvinnutryggingagjaldi til þess að standa undir kostnaði við Atvinnuleysistryggingasjóð og eftir atvikum aðra skattheimtu þannig að heildarskatttekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga raskist ekki.

„Verulega skortir á að vilji ríkisstjórnarinnar komi fram í þeirri yfirlýsingu sem ríkisstjórnin sendi frá sér í dag og voru fulltrúar ASÍ sammála um að framlögð tillaga gangi ekki að óbreyttu,“ segir í tilkynningunni.

„Það er jafnframt mat ASÍ að við þessar aðstæður í efnahags- og atvinnulífi sé ekki rétti tímapunkturinn til þess að gera miklar umbyltingar í skattamálum, m.a. vegna breyttra áherslna í umhverfis- og loftslagsmálum. Slíkar breytingar þurfa einfaldlega meiri undirbúning og aðlögun til þess að koma í veg fyrir óæskileg áhrif á nýjar ákvarðanir um fjárfestingar í atvinnuuppbyggingu.“

Sjá nánar á vef ASÍ.