Alþýðusamband Íslands mótmælir harðlega umfjöllun um hugsanleg viðbrögð Icelandair í kjaradeilu félagsins við Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) í fréttatilkynningu sambandsins í dag. Icelandair hefur hafnað féttum um að félagið hafi átt viðræður við önnur stéttafélög um störf flugfreyja og flugþjóna.

Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Icelandair skoðar möguleika á að semja við nýtt stéttarfélag flugfreyja og samkvæmt Fréttablaðinu hyggst Icelandair láta reyna á forgangsréttarákvæði kjarasamnings FFÍ fyrir félagsdómi náist ekki samningur.

Vangavelturnar eru settar fram á mjög viðkvæmu stigi samningaviðræðna og virðist tilgangurinn sá einn að hafa áhrif á starfsemi FFÍ og reka fleyg í samstöðu félagsmanna, segir í tilkynningu ASÍ .

ASÍ áréttar að stéttarfélög eru félög launafólks sem njóta verndar í stjórnarskrá og atvinnurekendum er óheimilt að skipta sér af. Icelandair getur ekki sjálft stofnað til eða haft frumkvæði að stofnun stéttarfélaga.

Slíkt atferli verður ekki unað í íslensku samfélagi og Icelandair hollt að hafa í huga að aðildarfélög ASÍ hafa heimildir til þess að veita FFÍ stuðning í yfirstandandi kjaradeilu með boðun samúðarvinnustöðvana og fulla heimild til þess að verja réttarstöðu sína gegn ólögmætum árásum.

„Flugfreyjur hafa verið samningslausar lengi. Þær hafa staðið sameinaðar og komið fram af heilindum í kjaraviðræðum. Að mæta þeim á þessu stigi samningaviðræðna með hótunum um að ganga gegn lögum og leikreglum á íslenskum vinnumarkaði er með öllu óviðunandi,“ er haft eftir Drífu Snædal, forseta ASÍ.

„Framganga Icelandair í samningaviðræðum við flugfreyjur hefur verið með ólíkindum og er til þess fallin að draga úr almennu trausti í garð þessa rótgróna flugfélags. Þetta er ekki flugfélagið okkar allra sem býður okkur velkomin heim. Við munum ekki sætta okkur við aðferðir sem á ensku eru kallaðar union busting og ganga út á að grafa undan samstöðu launafólks og eyðileggja verkalýðsfélög. Verkalýðshreyfingin mun ekki sitja með hendur í skauti andspænis slíkum aðgerðum.“