„Það eru mikil vonbrigði að ný ríkisstjórn virðist ekkert ætla að gera til þess að auka fjárfestingar og fjölga þannig störfum,“ segir í yfirlýsingu miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um fjárlagafrumvarpsins. Hún lýsir yfir vonbrigðum með áherslur ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eins og þær birtast í fjárlagafrumvarpinu.

Miðstjórn ASÍ segir m.a.:

„Frumvarpið ber þess merki að fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar var að rýra verulega tekjustofna ríkisins. Þannig var veiðileyfagjald útgerðarinnar lækkað um milljarða á sumarþingi og virðisaukaskattur á ferðaþjónustuna lækkaður. Þá er boðað að afnema eigi auðlegðarskatt á árinu 2015 og að draga eigi úr tekjujöfnun skattkerfisins til framtíðar með því að falla frá þrepaskiptu skattkerfi. Samtals er hér um að ræða milljarða króna skattalækkun fyrir velstæð fyrirtæki og einstaklinga. Til að mæta þessu tekjutapi er skorið niður í okkar mikilvægustu velferðarstofnunum á borð við spítala, heilsugæslu, framhaldsskóla og símenntamiðstöðvar og í stuðningi við þá sem hafa verið án atvinnu lengi.“