Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega það sem samtökin kalla sjálfvirkt ferli verðhækkana sem fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa boðað og þegar er hafið að sögn ASÍ.

„Hækkana sem eru langt umfram efnisleg tilefni. Með þessu eru fyrirtæki að boða aukna álagningu og þar með að auka hagnað sinn við erfiðar aðstæður í efnahagslífinu,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.

„Vert er að minna á að í þeim kjarasamningum sem undirritaðir voru 17. febrúar sl. sýndi verkalýðshreyfingin mikla ábyrgð með hófstilltum samningum þar sem áhersla var lögð á að auka kaupmátt þeirra tekjulægstu og þeirra sem setið höfðu eftir í góðæri undanfarinna missera. Meginmarkmið samninganna var hins vegar einfalt en gríðarlega mikilvægt. Að lækka verðbólgu og treysta þannig kaupmátt launafólks. Frá þessu markmiði má ekki hvika.“

Miðstjórn ASÍ gerir þá kröfu að fyrirtækin í landinu „axli með skýrum hætti ábyrgð á markmiðum kjarasamninga sem SA undirritaði fyrir þeirra hönd fyrir rúmum mánuði og leggi sitt af mörkum til að treysta þær forsendur sem þeir byggja á,“ segir í tilkynningunni.

Þá lýsir ASÍ yfir vonbrigðum með „aðgerðar- og úrræðaleysi stjórnvalda og telur mikilvægt að viðbragðshópur með fulltrúum launfólks, atvinnurekanda og stjórnvalda verði settur á fót til að ræða aðgerðir til úrlausnar aðsteðjandi vanda. Það verður ekki við það unað að byrðinni af efnahagsástandinu verði alfarið velt yfir á launafólk,“ segir í tilkynningu ASÍ.