Í ályktun miðstjórnar ASÍ frá því í gær er lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála.

„Miðstjórn ASÍ telur brýnt að allir axli ábyrgð á verðbólguvandanum. Rjúfa verður þann vítahring að seljendur vöru og þjónustu hækki verð í samræmi við liðna verðbólgu og leggi þannig grunn að enn meiri verðbólgu,“ segir á vef ASÍ.

„Gerð er krafa til þess að ríki og sveitarfélög haldi aftur af gjaldskrárhækkunum sínum en nokkuð hefur borið á þeim að undanförnu.“

Þá segir miðstjórn ASÍ forsendur kjarasamninga vera brostnar, „en þær byggðu á þeim forsendum að það tækist að koma böndum á verðbólgu og verja kaupmátt,“ segir á vef sambandsins.

„Miðstjórn ASÍ krefst þess að efnahagsvandinn verði tekinn föstum tökum. Reynslan hefur kennt okkur að samráð, samvinna og samstaða hafa skilað okkur mestum árangri þegar við þurft að takast á við mikla erfiðleika. Miðstjórn ASÍ hefur ítrekað kallað eftir breiðu samráði ríkisstjórnar, verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda en undirtektir ríkisstjórnarinnar hafa valdið vonbrigðum.“