Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag og hafa að sögn Bloomberg fréttaveitunnar ekki verið lægri í nær þrjú ár eða frá því í nóvember 2005.

Að sögn Bloomberg voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins.

MSCI Kyrrahafs vísitalan lækkaði um 2,6% og hefur ekki lækkað jafn mikið á einum degi frá því í lok júlí.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 2%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 3,1% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 2,3%.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 2,5% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 1,9%.