Hlutabréf lækkuðu nokkuð í Asíu í dag og hafa nú lækkað fimm daga í röð. Þetta er mesta lækkun á einni viku í rúmt ár að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Þannig lækkaði MSCI Kyrrahafs vísitalan um 2,1% í dag og hefur lækkað um 6,8% í vikunni. Þá hefur vísitalan ekki verið lægri í rúmlega tvö ár en hún hefur lækkað um 26% það sem af er ári.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 2,8%, í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 2,2% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 2,1%.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 2% og í Ástralíu lækkaði S&P 200 vísitalan um 2,1%.