Hlutabréfamarkaðir ýmist hækkuðu eða lækkuðu í Asíu í dag en þetta er fjórða vikan í röð sem MSCI Kyrrahafsvísitalan hefur lækkað í lok vikunnar.

Vísitalan stóð þó nánast í stað í dag en hefur engu að síður ekki verið lægri frá því í nóvember árið 2006.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan um 0,2% og í Kína lækkaði CSI 300 vísitalan um 0,3%.

Í Hong Kong hækkað Hang Seng vísitalan hins vegar um 0,9%, í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 0,2% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 um 1,2%.