Hlutabréfaverð í Asíu hækkaði í dag. Það voru lyfja- og fjármálafyrirtæki sem drógu vagninn, að því er fram kemur í frétt Bloomberg fréttaveitunni.
Dj Pacific, vísitala sem mælir hlutabréfaverð í Asíu, hækkaði um 1,6%. Japanska vísitalan Nikkei 300 hækkaði sömuleiðis um 1,6%. VN vísitalan í Víetnam hækkaði um 0,9%.
Kínverska vísitalan Composite vísitalan í Shanghai lækkaði um 0,5%, samkvæmt upplýsingum frá Dow Jones fréttaveitunni.