Asísk verðbréf enduðu viðskiptadaginn nokkurn veginn óbreytt í verði, en MSCI Asia Pacific vísitalan stóð í 146,74 stigum litlu fyrir lok viðskipta í dag. Gengi jafn margra hlutabréfa lækkaði og hækkaði í dag, en vísitalan lækkaði um 3,3% í vikunni. Japanska Nikkei 225 vísitalan hækkaði um 0,6% í dag.

Hlutabréf í hráolíu- og málmfyrirtækjum lækkuðu í verði, þar sem fjárfestar óttuðust að eftirspurn eftir hráefnum minnkaði með samdrætti í Bandaríkjunum.