Hlutabréf í Asíu lækkuðu um 0,8% í dag samkvæmt DJ Asia-Pacific vísitölunni. Í Evrópu byrjar dagurinn hins vegar með hækkunum og hefur Euronext 100 vísitalan hækkað um rúmt 1% þegar þetta er skrifað.
RBS með mesta tap í sögu Bretlands
Helstu tíðindin af evrópska markaðnum er að Royal Bank of Scotland kynnti í dag áform um miklar skipulagsbreytingar um leið og skýrt var frá 24 milljarða punda tapi í fyrra, sem er mesta tap fyrirtækis í Bretlandi á einu ári.
Lækkunin í Asíu var mest á meginlandi Kína og í Sjanghæ nam lækkunin rúmum 5%. Í Japan var lækkaði Nikkei 225 hins vegar óverulega.