Nikkei 225 vísitalan hækkaði um 0,6% og lauk í 16.473,36.

Raftæknifyrirtæki hækkuðu mest, Elpida Memory hækkaði um 0,2% í kjölfar þess að tilkynnt var að fyrirtækið ætlaði út í samstarf með örflögufyrirtækið Powerchip frá Taívan.

Farsímakerfisfyrirtækið NTT DoCoMo lækkaði um 1,1%, en áskrifendum fyrirtækisins fækkaði í nóvember.

Japan Tobacco hækkaði um 4,8%, en orðrómur er uppi um að fyrirtækið hyggist gera yfirtökuboð í breska tóbaksfyrirtækið Gallaher Group.