Nikkei 225 vísitalan hækkaði um 0,7% og lauk í 17.424,18. Fasteignafyrirtæki og stálframleiðendur nutu góðs af bjartsýnum spám um hagnað innan þeirra geira, segir í frétt Dow Jones.

Greiningaraðilar telja að vísitalan muni halda áfram að hækka smátt og smátt, nú þegar vísitalan nálgast hámark ársins 2006 og væntingar um að stórfyrirtæki muni hækka afkomuspár sínar í næstu viku.

Mitsubishi Estate hækkaði um 2,4%, Mizuho Financial Group um 2,1%, Nippon Steel hækkaði um 2,5% og JFE Holdings um 3,7%.