Nikkei 225 vísitalan hækkaði um 1,4% og lauk í 17011,04, en vísitalan hefur ekki farið yfir 17.000 síðan 9. maí síðastliðinn.

Stórfyrirtæki í kauphöllinni í Tókíó hækkuðu í dag, en hagstæðar efnahagsupplýsingar frá Bandaríkjunum og veiking jensins áttu þar þátt í, segir í frétt Dow Jones.

Toyota náði sögulegu hámarki í 7.560 jenum, en var í 7.550 jenum við lok dags, en það er 1,3% hækkun. Honda Motor hækkaði um 2,3% og hefur ekki verið hærra á árinu.