Nikkey 225 vísitalan lækkaði um 0,2% og lauk í 16.265,76. Talið er að fjárfestar muni sitja á sér þar til mikilvæg efnahagsgögn verða birt á miðvikudag og föstudag, og telja greiningaraðilar að ef þau verði jákvæð muni vísitalan fara yfir 16.500 markið.

Olíufyrirtæki lækkuðu í kjölfar þess að hráolíufatið lækkaði í viðskiptum á New York Mercantile Exchange. Japan Petroleum Exploration lækkaði um 1,1% og Inpex Holding um 3,4%.

Sumitomo Mitsui Financial lækkaði um 2,4%.