Nikkei 225 vísitalan lækkaði um 0,5% og lauk í 16.163,87.

Lítil viðskipti voru síðari hluta dags í kauphöllinni í Tókíó, en stýrivaxtaákvörðun seðlanbanka Japans er að vænta í dag. Fagaðilar telja að vísitalan muni verða á bilinu 16-16.500 á næstunni, en einhverjir telja að hún muni hækka upp í 17.000, jafnvel í lok mánaðar. Aozora Bank lækkaði um 3,6%, en síðan bankinn var skráður á hlutabréfamarkað hefur hann hríðfallið, en skráningin var ein sú stærsta á hlutabréfamarkaði Tókíó.