Hlutabréf í Asíu stóðu því sem næst í stað í dag, en MSCI Asia Pacific vísitalan endaði í nánast sama gildinu og hún hóf viðskiptadaginn og Nikkei vísitalan í Japan hækkaði um 0,4%. Hlutabréf í asískum orku- og skipafélögum hækkuðu í verði en bankar lækkuðu; mest Commonwealth Bank of Australia.