Fjárfestingabankinn Askar Capital hefur sent tilkynningu til Fjármálaeftirlitsins um meint brot þriggja fyrrverandi starfsmanna á lögum og verklagsreglum bankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en brotin varða starfsemi í eigin félagi starfsmannanna án vitneskju bankans og tengjast fjármagnsflutningum f.h. þriðja aðila á tímabilinu frá desember 2008 til mars 2009. Hin meintu brot komu upp við eftirlit regluvarðar.