Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) segir aðskilnað á fjarskiptastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur (OR), sem rekin er í dótturfélaginu Gagnaveitu Reykjavíkur (GR), frá annarri og sérleyfisbundinni starfsemi félagsins, sé „að mestu leyti fullnægjandi".

Gagnaveita Reykjavíkur fagnar jákvæðri umsögn Póst- og fjarskiptastofnunar um tilhögun fjárhagslegs aðskilnaðar Orkuveitu Reykjavíkur og Gagnaveitu Reykjavíkur. „Niðurstaðan staðfestir vönduð vinnubrögð og orðið verður við ábendingum stofnunarinnar."

Póst- og fjarskiptastofnun hefur gert úttekt á framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar OR og GR. Kemur þessi úttekt í kjölfar ákvörðunar PFS frá 13. nóvember 2006 um að OR væri skylt að aðskilja fjarskiptastarfsemina fjárhagslega frá annarri og sérleyfisbundinni starfsemi félagsins.

Í kjölfar ákvörðunar PFS 2006 stofnaði OR dótturfélagið Gagnaveitu Reykjavíkur um lagningu og rekstur ljósleiðarakerfis á veitusvæði sínu. Þar var m.a. um að ræða ljósleiðarakerfi sem OR keypti af Línu.Net hf. árið 2002.

Síminn gerði m.a. athugasemdir við lánafyrirgreiðslu sem fjarskiptakerfið fékk frá OR og vildi meina að verið væri að niðurgreiða fjarskiptastarfsemina í samkeppni við aðra með opinberu fé. PFS hefur nú gert úttekt á framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar fyrirtækjanna og birtir niðurstöðu sína með ákvörðun 32/2008.

Niðurstaða PFS er í stuttu máli sú að framkvæmd á fjárhagslegum aðskilnaði á fjarskiptastarfsemi OR, sem rekin er í dótturfélaginu GR, frá annarri og sérleyfisbundinni starfsemi félagsins, sé að mestu leyti fullnægjandi. Hins vegar er það jafnframt niðurstaða stofnunarinnar að GR verði að grípa til ákveðinna aðgerða til að auka gegnsæi hins fjárhagslega aðskilnaðar og jafna tiltekinn aðstöðumun varðandi lánakjör.

Annars vegar með því að GR skili inn ársreikningi eins og stærð og umsvif OR gefur tilefni til, þ.e. nýti sér ekki undanþáguákvæði um samandregna ársreikninga, og hins vegar með því að færa lánakjör í lánasamningi sínum við OR til samræmis við það sem almennt tíðkast um fjármögnun á fjarskiptamarkaði.