Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, mun sækjast eftir þriðja sæti á í prófkjöri flokksins í Reykjavík fyrir næstu kosningar.

Áslaug Arna tilkynnti framboð sitt í júlí en hafði ekki hingað til gefið upp hvaða sæti hún stefndi á. Hún hefur stundað laganám við Háskóla Íslands og tók við sæti ritara Sjálfstæðisflokksins á seinasta landsfundi.