Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Orku náttúrunnar (ON). Hún hefur áður starfað meðal annars sem forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Icelandair Group, verkefnisstjóri hjá Canadian Geothermal Energy Association og sviðsstjóri hjá verkfræðistofunni Mannviti, að því er segir í tilkynningun frá ON.

Áslaug Thelma Einarsdóttir.
Áslaug Thelma Einarsdóttir.

Auk þess hefur hún sinnt ýmis konar ráðgjöf við markaðsmál og viðburðarstjórnun. Áslaug sat í stjórn Rio Tinto Alcan en sagði sig úr stjórninni þegar hún réði sig til ON.

Áslaug er með BA próf í vinnusálfræði frá Arizona State University og MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík. Starf forstöðumanns markaðs- og kynningarmála er nýtt starf hjá ON en það varð til við aðskilnað sölu- og markaðsmála í skipulagi fyrirtækisins. Um 150 umsóknir bárust um starfið, sem auglýst var í ágúst.