Ásmundur Einar Daðason hefur verið skipaður þingflokksformaður Framsóknarflokksins og lætur hann um leið af störfum sem aðstoðarmaður forsætisráðherra. Eyjan greinir frá þessu.

Þar kemur fram að þetta hafi verið ákveðið á fundi þingmanna Framsóknarflokksins á Bifröst í morgun. Þórunn Egilsdóttir gegndi stöðu þingflokksformanns á síðasta kjörtímabili.

Ásmundur Einar var skipaður aðstoðarmaður Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar forsætisráðherra í nóvember árið 2013, en ráðningin var tímabundin og staðan ólaunuð.