Ásmundur Friðriksson, núverandi þingmaður, hélt upp á fertugsafmæli sitt í janúar 1996 og sem blaðurfulltrúi Hrekkjalómafélagsins í Vestmannaeyjum var eins og við var að búast mikið um glens í afmælinu. Áður hefur verið rifjað upp að hann fékk „að gjöf“ dansmærina Leoncie, en hann fékk einnig að gjöf göltinn Slumma, sem sést hér með afmælisbarninu á mynd sem birtist í Morgunblaðinu.