Ásmundur Tryggvason hefur verið ráðinn til starfa hjá Meið ehf. á greiningarsviði frá og með 31. mars 2005. Ásmundur hefur starfað hjá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka frá 2003 og starfaði þar áður í greiningu FBA og síðar Íslandsbanka frá 2000 til 2003. Þar áður starfaði hann á Viðskiptablaðinu.
Ásmundur útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands 1999 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2002. Ásmundur lauk einnig prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2000. Meiður er fjárfestingarfélag í eigu Bakkabræðra, KB banka og nokkurra sparisjóða. Heildareignir Meiðs um síðustu áramót voru 64 milljarðar króna. Meðal helstu eigna eru hlutir í Kaupþing Banka, Bakkavör Group, VÍS og Flögu Group hf. Höfuðstöðvar
félagsins eru að Tjarnargötu 35.