Á fundi sínum í dag tók bankaráð Landsbankans, (NBI hf.), ákvörðun um að fresta því að auglýsa stöðu bankastjóra þar til á þriðja ársfjórðungi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en Elín Sigfúsdóttir bankastjóri hefur gert bankaráðinu grein fyrir því að hún hyggist standa við fyrri ákvörðun um að láta af störfum um næstu mánaðamót eins og hún hafði áður greint frá.

Í tilkynningunni kemur fram að bankaráð hefur falið Ásmundi Stefánssyni, núverandi formanni bankaráðs, að taka við hlutverki bankastjóra þar til staðan verður auglýst og í hana ráðið á haustmánuðum.

Haukur Halldórsson varaformaður bankaráðs mun taka við formennsku þess og varamaður Ásmundar, Ása Richardsdóttir, tekur sæti í bankaráðinu.

„Meginástæða frestunarinnar er sú tímabundna óvissa sem um þessar mundir ríkir í rekstrar- og viðskiptaumhverfi bankans sem torveldar framtíðarsýn og um leið markmiðssetningu til lengri tíma litið,“ segir í tilkynningunni.

„Af hálfu bankaráðsins verður þeirri vinnu hraðað eins og auðið er við þessar aðstæður.“