Ásmundur Arnarsson sjúkra­þjálfari hefur tekið við starfi rekstrarstjóra Flexor. Ásmundur rak áður fyrirtækið Heilsuland sem hefur nú sameinast Flexor. Heilsuland sérhæfði sig í göngugreiningu og innleggjagerð.

Í tilkynningu segir að Ásmundur búi yfir reynslu af meðhöndlun stoðkerfisvandamála. Hann hafi að auki þekkingu á meðhöndlun íþróttameiðsla enda lengi þjálfað knatt­spyrnu.