Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, hefur dregið umsókn sína um starf bæjarstjóra Hafnarfjarðar tilbaka.

Eins og VB.is greindi frá var Ásta meðal 28 umsækjenda um stöðuna.

Ásta segir ástæður þess að hún dregur umsókn sína tilbaka vera nokkrar en fyrst og fremst er ástæðan sú að henni hafa borist fjölmargar áskoranir frá samstarfsfólki sínu um að vinna áfram að þeim krefjandi verkefnum sem framundan eru hjá Fríhöfninni.  „Sú mikla aukning ferðamanna til landsins hefur ekki farið framhjá neinum og það eru stór og viðamikil verkefni framundan hjá félaginu, m.a. miklar breytingar á brottfararverslun okkar sem og niðurstöður úr því útboði sem nú er á Keflavíkurflugvelli.  Fríhöfnin hefur hlotið fjöldann allan af viðurkenningum og verðlaunum á undanförnum árum, m.a. sem besta Fríhöfn Evrópu 2013 og við viljum halda henni  í fremstu röð áfram, enda mikið í húfi fyrir alla hagsmunaaðila," segir Ásta.