Þingflokkur Pírata hefur skipað nýja stjórn þingflokksins á þingflokksfundi 30. janúar 2017. Ásta Guðrún Helgadóttir, er nýr þingflokksformaður Pírata.

Aðrir í stjórn þingflokks Pírata eru: Einar Brynjólfsson sem er nýr varaþingflokksformaður og Björn Leví Gunnarsson sem er ritari þingflokksins.

Í tilkynningu frá Pírötum þakka þeir Birgittu Jónsdóttir fyrir störf hennar sem þingflokksformaður á kjörtímabilinu.