Ásta Möller hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og hefur þar störf í vikunni. Hún mun jafnframt hefja kennslu í stjórnmálafræðideild nú á vormisseri.

Þetta kemur fram á vef Háskóla Íslands.

Ásta lauk BSc námi í hjúkrunarfræði 1980 og MPA meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún var alþingismaður og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 1999-2009. Ásta hefur starfað við hjúkrun, stjórnun og kennslu á heilbrigðisstofnunum. Hún var settur aðjúnkt í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands 1982-1984.

Ásta Möller tekur við af Margréti S. Björnsdóttur, sem hefur verið forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða frá árinu 2002. Margrét hefur verið ráðin aðjúnkt við stjórnmálafræðideild HÍ og mun áfram sinna verkefnum fyrir stofnunina.

Sjá nánar á ef HÍ.