Umsóknarfrestur um stöðu bæjarstjóra í Hafnarfirði rann ú þann 13. júlí þá höfðu 30 sótt um stöðuna en  tveir drógu umsókn sína til baka. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 18.júní að auglýsa stöðu bæjarstjóra lausa til umsóknar og fól bæjarráði ábyrgð á ráðningarferlinu. Skipuð var þriggja manna valnefnd sem fékk það hlutverk að greina starfið, skilreina hæfniskröfur, stýra matsferlinu og meta hæfi umsækjenda. Í valnefndinni eru Rósa Guðbjartsdóttir, Guðlaug Kristjánsdóttir og Gunnar Axel Axelsson.

Rósa Guðbjartsdóttir, formaður, bæjarráðs, segir spennandi tíma framundan í Hafnarfirði og að hún hlakki til að vinna með nýjum bæjarstjóra, en hver það verði komi vonandi í ljós mjög fljótlega. Hún segir að þau munu hefja viðtöl á næstu dögum, að það séu margir hæfileikaríkir umsækjendur á listanum og að hún vilji þakka öllum sem sóttu um fyrir áhugann. Hún segir þau eiga skemmtilegt en krefjandi verkefni fyrir höndum að velja bæjarstjóra fyrir Hafnarfjörð.

Hér fyrir neðan má sjá umsækjendur og menntun þeirra:

Ásgeir Einarsson Lögfræði

Ásta Dís Óladóttir Ph.D Alþjóðaviðskipti

Baldur Þórir Guðmundsson Viðskiptafræði

Bergur Hauksson M.Sc viðskiptafræðingur

Bjarki Jóhannesson Ph.D Skipulagsfræði

Drífa Jóna Sigfúsdóttir Viðskiptafræði

Egill Anton Hlöðversson Rafvirkjun

Elín Björg Ragnarsdóttir Lögfræði

Erla Björk Þorgeirsdóttir Rafmagnsverkefræði

Guðmundur Jóhann Árnason Viðskiptalögfræði

Guðrún Pálsdóttir MBA

Gylfi Kristinn Sigurgeirsson Fjármála- og rekstrarnám

Haraldur L. Haraldsson M.Sc í hagfræði

Jóhann Guðni Reynisson Kennari, opinber stjórnsýsla

Jón Hrói Finnsson Cand.sci.pol

Jón Ólafur Gestsson Alþjóðasamskipti

Jón Ólafur Ólafsson Arkitektúr

Kristinn Dagur Gissurarson Viðskiptafræði

Kristinn Tómasson MBA

Magnús Jóhannesson Rekstrarhagfræði

Magnús Ægir Magnússon MBA

María Kristín Gylfadóttir MBA

Ólafur Guðjón Haraldsson M.Sc í EBA

Ólafur Ólafsson Viðskiptafræði

Óli Örn Eiríksson Viðskiptafræði

Páll Línberg Sigurðsson Ferðamálafræði

Þórður Sverrisson Rekstrarhagfræði

Þórey S. Þórisdóttir Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti