Michael Schumacher, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 kappakstrinum, er enn í lífshættu eftir alvarlegt skíðaslys. Ástand hans er þó örlítið betra í dag en í gær.

Schumacher hlaut alvarlega áverka á heila þegar hann féll á skíðum á sunnudagsmorgun í Sviss. BBC greinir frá málinu í dag.