Neytendastofa gerði athugun á ástandi verðmerkinga í 19 húsgagnaverslunum á höfuðborgarsvæðinu sem selja rúm.

Á vef Neytendastofu segir að þeim hafi borist ábendingar frá neytendum þess efnis að verðmerkingum á rúmum í húsgagnaverslunum væri ábótavant.

Annars vegar var kannað ástand verðmerkinga á rúmum og hinsvegar verð á fylgihlutum. Verðmerkingar voru almennt í samræmi við ákvæði laga og reglna og kemur í þeim tilfellum ekki til frekari aðgerða af hálfu Neytendastofu.

Verðmerkingum var ábótavant í 6 af þeim 19 verslunum sem heimsóttar voru segir á vefnum.

Neytendastofa sendi skriflegar athugasemdir til þeirra verslana þar sem verðmerkingum var ábótavant og þeim gefinn frestur til að koma verðmerkingum í samt lag. Að þeim fresti loknum verður ástand verðmerkinga kannað á ný og gripið til aðgerða telji stofnunin þess þörf.

Neytendastofa hyggst halda verðmerkingaeftirliti sínu áfram og gera skoðun á ástandi verðmerkinga hjá fleiri verslunum. Neytendur eru hvattir til þess að senda ábendingar um ástand verðmerkinga á rafrænni neytendastofu sem aðgengileg er af vefsíðu Neytendastofu.