Atvinnuleysi í Bandaríkjunum minnkaði í janúar og mælist nú 8,3%. Störfum fjölgaði um 243 þúsund í mánuðinum. Það er langt umfram það sem búist var við, segir Financial Times í umfjöllun sinni um málið í dag. Búist var við að störfum fjölgaði um 140 þúsund.

Markaðir vestanhafs tóku vel í fréttirnar og helstu vísitölur hækkuðu við opnun markaða.