Ásthildur Margrét Otharsdóttir var kjörin nýr varaformaður stjórnar Marel á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Ásthildur Margrét hefur setið í stjórn Marel frá árinu 2010.

Á aðalfundinum var stjórn Marel endurkjörin. Hana skipa: Arnar Þór Másson, Árni Oddur Þórðarson, Ásthildur Margrét Otharsdóttir, Friðrik Jóhannsson, Helgi Magnússon, Margrét Jónsdóttir og Theo Bruinsma. Stjórnin hefur þegar komið saman og skipt með sér verkum. Árni Oddur er áfram stjórnarformaður Marel.

Marel
Marel
Stjórn Marel: Frá vinstri er Árni Oddur Þórðarson stjórnarformaður, Arnar Þór Másson er á bak við hann. Við hlið Árna Odds er Margrét Jónsdóttir og á bak við hana Helgi Magnússon. Við hlið Margrétar stendur Ásthildur Margrét Otharsdóttir. Að síðustu standa við hlið hennar þeir Friðrik Jóhannsson og Theo Bruinsma.