Ásthildur Helgadóttir hefur verið ráðin sviðstjóri umhverfissviðs Kópavogsbæjar. Ásthildur var valin úr hópi 87 umsækjenda.

Ásthildur hefur undanfarin ár starfað sem verkfræðingur á Íslandi fyrir byggingarverktakana GG Verk og Munck Íslandi, og í Svíþjóð fyrir byggingarverktakana Peab AB í Malmö og NIMAB AB í Sjöbo og NCC Construction AB í Malmö.

Einnig starfaði hún á sínum tíma hjá verkfræðistofunni Línuhönnun og vann sem sérfræðingur í eignastýringu hjá Landsbanka Íslands. Ásthildur var bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi árin 2006-2009 og gegndi þá stöðu formanns íþrótta- og tómstundanefndar Kópavogs.

Ásthildur starfaði áður um fjögurra ára skeið sem atvinnumaður í knattspyrnu í Malmö í Svíþjóð og var fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu árin 2001-2007. Þá starfaði hún sem formaður Íþróttanefndar ríkisins um skeið. Ásthildur er með meistaragráðu í byggingarverkfræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð og með B.E. gráðu í verkfræði frá Vanderbilt háskólanum í Bandaríkjunum.