Ástþór Helgason hefur verið ráðinn í stöðu stjórnanda HönnunarMars. Ástþór hefur víðtæka reynslu á sviði hönnunar við sýningastjórnun, viðburðastjórnun og rekstri. Hann hefur sinnt ráðgjöf og stjórnað verkefnum í farsælu samstarfi við fjölda hönnuða, listamanna og stofnanir.

Hann sat í stjórn Hönnunarsjóðs fyrstu árin frá stofnun hans og átti virkan þátt í mótun áherslna og starfsemi. Hann hefur einnig setið í stjórn launasjóðs hönnuða. Ástþór sem er menntaður gullsmiður, sat áður í stjórn Form Ísland, þverfalegum samtökum hönnuða á Íslandi, sem var undanfari Hönnunarmiðstöðvar.

Ástþór hefur áratuga reynslu sem framkvæmdastjóri í hönnunargeiranum og mun ráðning hans marka upphaf að nýjum kafla í mikilvægu uppbyggingarstarfi Hönnunarmiðstöðvar til eflingar hönnunar og arkitektúrs á Íslandi.

HönnunarMars er hátíð hönnunar og er hún eins konar suðupunktur nýrrar þróunar, nýsköpunar, hönnunar og viðskipta.